Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn (FHG) auglýsir eftir starfsmanni á verkstæði. FHG tilheyrir Útilífsborginni sem heyrir undir Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar
Vélaeftirlitsmaður sinnir verkefnum FHG/Útilífsborgarinnar á sviði viðhalds, öryggis- og tæknimála með það að markmiði að umhverfi, búnaður og tæki séu ávalt í eins góðu ásigkomulagi og völ er á. Virkni búnaðar og tækja sé samkvæmt væntingum og að hvorki starfsmönnum, dýrum né gestum stafi hætta af notkun þeirra.
Við leitum að öflugum og úrræðagóðum iðnmenntuðum einstaklingi í fullt starf sem hefur mikinn áhuga á tækni-, véla- og öryggismálum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 100%
Umsóknarfrestur 08.11.2024
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hafsteinn Grétarsson í síma 695-5023.
Starfamerkingar: Reykjavíkurborg, Starf í boði
Fá tilkynningu um svipuð störf
Matreiðslumaður/Kokkur á suðurnesjum Álfasaga ehf leitar að metnaðarfullum einstakling í framtíðarstarf sem Matreiðslumaður/Matartæknir á Ásbrú í Reykjanesbæ. Vinnutími er frá...
Sækja um þetta starf