Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Til umsóknar er starf umsjónarmanns/tæknimanns á rannsóknarstofu í jarðefnafræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Um er að ræða fullt starf og ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma.
Starfið felur í sér umsjón með rannsóknarstofum í jarðefnafræði, efnasýnatöku, efnagreiningar á vatni, gasi og bergi og uppsetningu og þróun efnagreiningaaðferða. Jafnframt er ætlast til þess að starfsmaðurinn þjálfi og aðstoði starfsmenn og framhaldsnema við efnagreiningar.
Meistarapróf í jarðefnafræði, efnafræði eða sambærilegum greinum.
Reynsla af vinnu á rannsóknarstofu.
Reynsla af sýnatöku, efnagreiningum og framsetningu gagna er kostur.
Frumkvæði og öguð vinnubrögð.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst en þó eigi síðar en 1. janúar 2025.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni:
Vottorð um námsferil sinn og störf,
Ritaskrá,
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum verður tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann.
Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 400 manns sem sinna kennslu, rannsóknum og stoðþjónustu. Starfsumhverfið er alþjóðlegt og hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið eykst stöðugt, en um fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur. Verkfræði- og náttúruvísindasvið leggur áherslu á fjölbreytileika og umbótasinnað umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2024
Olgeir Sigmarsson, olgeir@hi.is
Andri Stefánsson, as@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Nýdoktor í tilraunastjarneðlisfræði Hlusta Starf nýdoktors við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands er laust til umsóknar. Nýdoktorinn mun verða hluti af CMBeam...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í tilraunastjarneðlisfræði Hlusta Auglýst er eftir umsóknum um starf doktorsnema í stjarneðlisfræði með áherslu á rannsóknir tengdar örbylgjukliðnum. Námið...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands: Áhrifatryggð í samfélagslegri nýsköpun Hlusta Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um doktorsnemastöðu, sem nýtur...
Sækja um þetta starfLaugalækjarskóli er annar af hverfisskólum Laugarneshverfis, stofnaður árið 1960. Í skólanum eru um 415 nemendur í 7. – 10. bekk...
Sækja um þetta starfStefna leikskólans byggist á aðferðarfræði John Dewey sem var amerískur heimspekingur, sálfræðingur og uppeldisfrömuður. Hans hugmyndir voru ma. að börnin...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands: Gagnsæi og áhrifamælinga í hönnun félagslegra viðskiptalíkana Hlusta Námsleið í umhverfis- og...
Sækja um þetta starf