Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Umsjón fasteigna, framkvæmda- og tæknisviðs Háskóla Íslands óskar eftir að ráða umsjónarmann fasteigna í fullt starf. Starfið fellur undir deildarstjóra umsjónar fasteigna Háskóla Íslands. Umsjón fasteigna sér um daglegan rekstur bygginga Háskóla Íslands og er meðal annars unnið um kvöld og helgar.
Dagleg umsjón með byggingum
Umsjón og eftirlit með hússtjórnarkerfum og öryggismálum
Eftirlit með ræstingu í byggingum
Aðstoð í kennslustofum og öðrum rýmum
Ýmislegt viðhald í byggingum
Flutningar innan og á milli bygginga
Önnur tilfallandi verkefni
Gerð er krafa um handlagni, iðnmenntun er kostur
Kunnátta í íslensku og ensku
Almenn tölvukunnátta
Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Almenn ökuréttindi
Reynsla af notkun öryggis- og hússtjórnarkerfa er kostur
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess
Afrit af prófskírteinum ef við á
Upplýsingar um umsagnaraðila
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.09.2024
Björn Auðunn Magnússon, bam@hi.is