Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í gagnavísindum við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans (sjá https://math.hi.is).
Gagnavísinda- og gervigreindarsetur Háskóla Íslands verður tengslagátt rannsakenda HÍ með snertifleti við gagnavísindi og gervigreind. Setrið mun efla þverfræðilegt samstarf bæði innan HÍ og við atvinnulífið með því að:
Halda úti upplýsingasíðu yfir rannsakendur setursins þar sem sérþekking þeirra tengd gagnavísindum eða gervigreind kemur fram.
Hafa aðgengilega samskiptafleti, þar sem aðilar, innan og utan HÍ, geta lýst úrlausnarverkefnum sem þeir óska eftir samstarfi eða ráðgjöf við.
Halda úti reglulegum málstofum, fræðslufundum og vinnuhópum um gagnavísindi og gervigreind, ætlaðar almenningi, framhaldsnemum eða vísindafólki.
Sérfræðingnum er ætlað að stýra Gagnavísinda- og gervigreindarsetri Háskóla Íslands, stunda rannsóknir í tölfræði eða hagnýttri stærðfræði, kenna námskeið í gagnavísindum við Námsbraut í stærðfræði og leiðbeina framhaldsnemum.
Sérfræðingnum er ætlað að leiða stefnumótun setursins og efla þverfaglegt samstarf, laða að fjármögnun, stunda framúrskarandi rannsóknir, leiðbeina framhaldsnemum og efla tengsl við atvinnulíf, almenning og alþjóðlega samstarfsaðila. Starfsskyldur munu vera 50% rannsóknir, 30% stjórnun og 20% kennsla.
Doktorspróf í tölfræði, hagnýttri stærðfræði eða skyldri grein.
Rannsóknavirkni á alþjóðavettvangi.
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknastarfa er æskileg.
Reynsla af leiðbeiningu framhaldsnema í rannsóknanámi er æskileg.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er æskileg.
Við ráðningu verður horft til þess að umsækjandi falli sem best að aðstæðum og þörfum Raunvísindastofnunar en tekið verður tillit til hversu vel rannsóknir umsækjanda falla að áherslum fyrirhugaðs Gagnavísinda- og gervigreindarseturs HÍ.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. maí 2025 enda verði störfum nefnda, sem um málið fjalla, þá lokið.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
4. Ritaskrá
5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
6. Greinargerð um rannsóknaáform ef til ráðningar kemur
7. Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hvert ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast.
Akademískir starfsmenn með aðsetur á Raunvísindastofnun eru um 60 kennarar og sérfræðingar. Stofnunin er rannsóknarvettvangur kennara, sérfræðinga og framhaldsnema sem stunda grunnrannsóknir í raun- og jarðvísindum. Raunvísindastofnun hefur sterk alþjóðleg tengsl og mörg rannsóknarverkefni eru unnin í víðtæku samstarfi vísindamanna hérlendis og erlendis.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2025
Sigrún Helga Lund, sigrunhl@hi.is
Benedikt Steinar Magnússon, bsm@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Nýdoktor í stærðfræði við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf nýdoktors við Stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starfLektor í fæðinga- og kvensjúkdómafræði við Læknadeild með áherslu á frjósemislækningar- Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar...
Sækja um þetta starfNýdoktor við Heimspekistofnun Hlusta Háskóli Íslands kallar eftir umsóknum um starf nýdoktors við Heimspekistofnun, Hugvísindasviði, tengt rannsóknaverkefninu Frelsi til merkingarsköpunar...
Sækja um þetta starfLektor á sviði stærðfræðimenntunar hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði stærðfræðimenntunar við...
Sækja um þetta starfLektor í tómstunda- og félagsmálafræði við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda Menntavísindasviðs Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar starf...
Sækja um þetta starfLektor í starfstengdri siðfræði við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar starf lektors...
Sækja um þetta starf