Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laus eru til umsóknar tvö störf lektora í félagsráðgjöf. Leitað er eftir einstaklingum með starfsreynslu af mismunandi sviðum velferðarmála þar á meðal úr félags-, heilbrigðis- og menntakerfi og sem hafa áhuga á að helga sig akademísku starfi, framþróun rannsókna og rannsóknaraðferða á sviði félagsráðgjafar.
Lektorunum er ætlað að sinna kennslu í grunn- og meistaranámi til starfsréttinda í félagsráðgjöf með áherslu á vinnuaðferðir félagsráðgjafar með einstaklingum, fjölskyldum, hópum og samfélagsvinnu. Áhersla er lögð á að þeir geti kennt almenna félagsráðgjöf og hafi sérþekkingu á einu eða fleiri sérfræðisviðum greinar. Lektorunum er ætlað að sinna rannsóknum á sviði félagsráðgjafar og velferðarþjónustu.
Umsækjandi skal hafa lokið meistaraprófi til starfsréttinda í félagsráðgjöf auk þess að hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, sem staðfest er með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.
Starfsréttindi í félagsráðgjöf
Starfsreynsla á sviði félags- og/eða velferðarþjónustu
Reynsla af rannsóknum í félagsráðgjöf eða skyldum greinum
Reynsla af kennslu á háskólastigi er æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt góðri hæfni til að miðla þekkingu.
Við ráðningu verður miðað við að sá sem hlýtur starfið falli sem best að aðstæðum og þörfum Félagsráðgjafadeildar Félagsvísindasviðs.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Miðað er við að ráðið verði í starfið frá 1. apríl 2025, eða samkvæmt nánara samkomulagi, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna fjalla.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá (auðkenna ber ritrýnt efni sérstaklega)
Starfsferilsskrá um vísindastörf og önnur störf sem umsækjandi hefur unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Um meðferð umsókna, mat á hæfni umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Samkvæmt 38. gr. reglnanna er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér.
Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands er ein sex deilda Félagsvísindasviðs. Fyrstu félagsráðgjafarnir útskrifuðust 1982 en greinin varð sjálfstæð deild árið 2008. Við deildina er boðið uppá BA- og MA nám til starfsréttinda í félagsráðgjöf, auk fjölda þverfaglegra framhaldsnámsleiða og doktorsnám. Nemendafjöldi er um 650.
Á Félagsvísindasviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum. Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónusturannsóknir og lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar samræður víð íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn starfa í föstum störfum við skólann og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 12.500. Skólinn skiptist í sex grunneiningar, miðlæga stjórnsýslu og fimm fræðasvið. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunn- og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2025
Hervör Alma Árnadóttir, hervora@hi.is
Sími: 525-4081
Fá tilkynningu um svipuð störf
Sérfræðingur í gagnavísindum við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í gagnavísindum við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar...
Sækja um þetta starfLektor í starfstengdri siðfræði við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar starf lektors...
Sækja um þetta starfLektor í tómstunda- og félagsmálafræði við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda Menntavísindasviðs Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar starf...
Sækja um þetta starfLektor á sviði stærðfræðimenntunar hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði stærðfræðimenntunar við...
Sækja um þetta starfNýdoktor í stærðfræði við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf nýdoktors við Stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starf