Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar fullt starf lektors í kynjafræði.
Lektornum er ætlað að sinna kennslu, að miklu leyti í fjarkennslu, og rannsóknum í kynjafræði með áherslu á stjórnsýslu jafnréttismála.
Doktorspróf í kynjafræði eða skyldum sviðum
Góð kunnátta í eigindlegri eða megindlegri aðferðafræði
Kennslureynsla í kynjafræði
Reynsla af fjarkennslu á háskólastigi er kostur
Virkni og hæfni í rannsóknum með sýnilegum hætti
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt góðri hæfni til að miðla þekkingu
Við ráðningu verður horft til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum Stjórnmálafræðideildar og Félagsvísindasviðs.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Miðað er við að ráðið verði í starfið frá 1.7.2025, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna fjalla.
Umsóknir
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur
Vottorð um námsferil sinn
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Umsókn og umsóknargögnum sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands nr. 569/2009, 38. gr. er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Á Félagsvísindaviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum. Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónusturannsóknir og lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar samræður við íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn starfa í föstum störfum við skólann og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 12.500. Skólinn skiptist í sex grunneiningar, miðlæga stjórnsýslu og fimm fræðasvið. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.03.2025
Eva Marín Hlynsdóttir, evamarin@hi.is
Sími: 525-5463
Fá tilkynningu um svipuð störf
Tvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst Hlusta Tvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst eru...
Sækja um þetta starfTvö störf doktorsnema í rafmagns- og tölvuverkfræði Hlusta Óskað er eftir umsóknum um tvö doktorsnemastörf í fullu starfi í rafmagns-...
Sækja um þetta starfTvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst Hlusta Tvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst eru...
Sækja um þetta starfLektor í eðlisefnafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í eðlisefnafræði við námsbraut í efnafræði innan Raunvísindadeildar á...
Sækja um þetta starfAðjúnkt í skapandi sjálfbærni. Háskóli Íslands. Menntavísindasvið. Hallormsstaður Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í skapandi sjálfbærni til...
Sækja um þetta starfLektor í almennri hjúkrunarfræði – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í almennri hjúkrunarfræði...
Sækja um þetta starf