Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í eðlisefnafræði við námsbraut í efnafræði innan Raunvísindadeildar á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu og rannsóknir á sviði eðlisefnafræði, auk stjórnunarskyldu.
Gert er ráð fyrir að sá umsækjandi er starfið hlýtur byggi upp sjálfstæðar rannsóknir, fjármagnaðar af sjálfsaflafé, sem standast alþjóðlegan samanburð. Viðkomandi mun fá rannsóknaraðstöðu hjá Raunvísindastofnun Háskólans og kenna námskeið í eðlisefnafræði, bæði í grunn- og framhaldsnámi, ásamt því að leiðbeina framhaldsnemum í rannsóknanámi.
Fyrirlestrar í grunnnámi fara almennt fram á íslensku og er ætlast til þess að viðkomandi geti kennt á íslensku innan fimm ára frá upphafi starfs. Háskóli Íslands aðstoðar erlent starfsfólk við að læra og ná tökum á íslensku máli eftir þörfum.
Doktorspróf í efnafræði eða skyldu fagsviði.
Reynsla af rannsóknum á sviði tilraunaeðlisefnafræði.
Virkni og hæfni í rannsóknum á alþjóðavettvangi.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Reynsla af samvinnuverkefnum og öflun styrkja til rannsóknarstarfa er æskileg.
Við ráðningu verður horft til þess að umsækjandi falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil í háskólanámi.
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae).
Ritaskrá.
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið.
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur.
Upplýsingar um þrjá umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Ráðið verður í starfið til fimm ára fyrst í stað, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi háskólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsfólks í uppbyggingu náms og rannsókna við skólann. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast. Á sviðinu eru um 2000 nemendur, þar af um fjórðungur framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.03.2025
Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson, benjaminrs@hi.is
Sími: 5255272
Fá tilkynningu um svipuð störf
Tvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst Hlusta Tvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst eru...
Sækja um þetta starfTvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst Hlusta Tvö störf doktorsnema í þróun rafskauta fyrir háþróuð rafhlöðuafköst eru...
Sækja um þetta starfTvö störf doktorsnema í rafmagns- og tölvuverkfræði Hlusta Óskað er eftir umsóknum um tvö doktorsnemastörf í fullu starfi í rafmagns-...
Sækja um þetta starfLektor í almennri hjúkrunarfræði – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í almennri hjúkrunarfræði...
Sækja um þetta starfLektor í kynjafræði, Stjórnmálafræðideild, Félagsvísindasvið Háskóli Íslands Hlusta Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar fullt starf lektors í kynjafræði....
Sækja um þetta starfAðjúnkt í skapandi sjálfbærni. Háskóli Íslands. Menntavísindasvið. Hallormsstaður Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í skapandi sjálfbærni til...
Sækja um þetta starf