Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns, sem jafnframt er starf akademísks sérfræðings, við Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum. Á vegum Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands hefur verið starfsemi í Vestmannaeyjum samfellt frá árinu 2021 og með hléum frá 1994. Rannsóknasetrinu er einkum ætlað að sinna rannsóknum á sviði sjávarlíffræði með sérstaka áherslu á hvali og önnur sjávarspendýr. Forstöðumaðurinn verður starfsmaður Háskóla Íslands og hefur starfsaðstöðu við Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum, í húsnæði sem það deilir með Þekkingarsetri Vestmannaeyja og fleiri stofnunum. Búseta á svæðinu er því skilyrði.
Innan Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands eru starfrækt 12 sjálfstæð rannsóknasetur víða um land. Markmið stofnunarinnar er m.a. að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni og vera vettvangur samstarfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Rannsóknir eru meginviðfangsefni rannsóknasetranna og eru viðfangsefnin fjölbreytt og tengjast nærumhverfi setranna með einhverjum hætti.
Auk sjálfstæðra rannsókna hefur forstöðumaður umsjón með starfsemi setursins, fjármálum þess og daglegum rekstri. Hann skipuleggur rannsóknir og samstarfsverkefni, hefur með höndum áætlanagerð og stýrir sókn í sjóði. Hann þarf að geta tekið að sér leiðbeiningu háskólanema í framhaldsnámi og aðra kennslu á háskólastigi. Gert er ráð fyrir því að sterk tengsl verði við rannsóknir og kennslu við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, sérstaklega vegna vettvangskennslu, og þá samkvæmt samkomulagi á milli deildar og seturs.
Lögð er rík áhersla á árangur í starfi, áhrif og gæði rannsókna og hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna.
Doktorspróf á sviði líffræði eða skyldra greina
Reynsla af rannsóknum á sviði sem hefur skírskotun til lífríkis sjávar, sérstaklega sjávarspendýra.
Reynsla af stjórnun verkefna og/eða stjórnun með mannaforráðum.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, lipurð í mannlegum samskiptum.
Gott vald á ensku.
Gott vald á íslensku er æskilegt.
Reynsla af alþjóðasamstarfi sem og reynsla af þverfræðilegu samstarfi er æskileg.
Reynsla af sókn í innlenda sem erlenda rannsóknasjóði er kostur.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eftir að lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna fjalla.
Um fullt starf er að ræða og verður ráðið í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009. Sérstök nefnd sem rektor skipar annast mat umsókna.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknaráætlun til fimm ára þar sem koma skal fram hvernig rannsóknir umsækjanda tengjast Vestmannaeyjum og hafinu umhverfis eyjarnar.
Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsókn og umsóknargögnum sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2024
Sæunn Stefánsdóttir, saeunnst@hi.is
Sími: 525 4041
Fá tilkynningu um svipuð störf
Doktorsnemi í tilraunastjarneðlisfræði Hlusta Auglýst er eftir umsóknum um starf doktorsnema í stjarneðlisfræði með áherslu á rannsóknir tengdar örbylgjukliðnum. Námið...
Sækja um þetta starfHagaborg er 6 deilda leikskóli og þar dvelja 123 börn næsta vetur. Við leitum að skapandi og áhugasömu fólki með...
Sækja um þetta starfAðjúnkt 2 í ítölsku Hlusta Laust er til umsóknar starf aðjúnkts 2 í ítölsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starfAðjúnkt við Námsbraut í tannsmíði – Tannlæknadeild – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar 70% starf aðjúnkts...
Sækja um þetta starfNýdoktor eða rannsóknamaður við Námsbraut í talmeinafræði – rannsókn á sviði málþroska (íslenska sem annað mál) Hlusta Auglýst er fullt...
Sækja um þetta starfViltu vera hluti af skemmtilegum hópi starfsfólks í Furuskógi? Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi óskast til starfa í leikskólann Furuskóg til að sinna umönnun,...
Sækja um þetta starf