Miðborg er 10 deilda leikskóli í þremur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26, Njálsgötu 70 og Barónsstíg 34.
Við leitum að deildarstjóra sem er tilbúin að taka þátt í spennandi þróunarverkefni en Miðborg er hluti að Nurture innleiðingaverkefni Reykjavíkurborgar. https://blogs.glowscotland.org.uk/glowblogs/glasgowpsychologicalservice/nurture/
Mikilvægt er að deildarstjórinn sé með opið hugarfar og hafi áhuga eða reynslu að því að vinna eftir hugmyndafræði sálfræðingsins Mihaly Csikszentmihalyi um flæði.
Nálægðin við miðbæinn ýtir undir fjölmenningarlegt, fjölbreytt og skemmtilegt starf. Mikil gróska er í starfinu og spennandi tímar fram undan. Við leggjum áherslu á sjálfssprottinn leik þar sem hugmyndafræðin um flæði er í forgrunni. Að mynda góð tengsl við börn og foreldra skiptir okkur miklu máli svo öll getum við blómstrað í öruggu umhverfi.
Ráðið er í starfið strax eða eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið veita leikskólastjórarnir Tinna Sigurðardóttir og Ösp Jónsdóttir á midborg@rvkskolar.is.