Verkmenntaskólinn á Akureyri | |
Starfsemi Verkmenntaskólans einkennist af námsframboði fyrir alla nemendur, með áherslu á fjölbreytt nám, bæði í iðn- og tækninám ásamt hefðbundnu bóknámi. Skólinn er áfangaskóli með skipulagi sem gerir nemendum kleift að sníða námið að aðstæðum sínum og þörfum. Nemendur geta lokið stúdentsprófi á þremur eða tveimur og hálfu ári í stað þriggja en jafnframt geta nemendur tekið lengri tíma til að klára námið sitt – allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Þá geta nemendur útskrifast af fleiri en einni braut. Námsvalið sem nemendum stendur til boða er afar fjölbreytt; almennt nám, matvælanám, sjúkraliðabraut, vélstjórnarnám, starfsbraut, hársnyrtinám, byggingagreinar, rafiðngreinar, bifvélavirkjun og málmiðngreinar. Nemendur geta lokið stúdentsprófi af félagsfræðabraut, náttúrufræðabraut, listnámsbraut, íþrótta- og lýðheilsubraut og viðskipta- og hagfræðibraut en einnig geta nemendur lokið stúdentsprófi með eða að loknu öllu starfs-, iðn- og tækninámi við skólann. Við skólann er öflugt nemendafélag sem heldur utan um félagslíf nemenda. Haldin er vegleg árshátíð á hverju ári, söngkeppni, Lan-mót og nýnemahátíð. Þá eru starfandi ýmsir klúbbar innan nemendafélagsins s.s. ljósmyndaklúbbur, leikfélag, myndbandsklúbbur og margt fleira. Verkmenntaskólinn á Akureyri tók til starfa árið 1984 í nýju húsnæði skólans við Hringteig á Eyrarlandsholti. Fyrsta skólaárið voru nemendur 780 en tæpum 30 árum síðar voru þeir rúmlega 1300. Frá 2017 hafa nemendur verið í kringum 1100 og að auki stunda um 300 nemendur nám í fjarnámsdeild skólans á hverju skólaári. Við skólann starfa hátt í 200 starfsmenn. Fyrsti skólameistari Verkmenntaskólans var Bernharð Haraldsson en núverandi skólameistari er Sigríður Huld Jónsdóttir. |