Stilling hf. var stofnuð 17. oktober 1960 sem sérhæft hemlaverkstæði.
Stofnendur ásamt Bjarna Júlíussyni voru Þórður Júlíusson verkfræðingur sem átti upphaflega hugmynd að fyrirtækinu, Magnús Baldvinsson kenndur við í MEBA, Óskar Ólafsson vélstjóri og Benedikt Magnússyni kenndur við BM Vallá.
Í dag er fyrirtækið leiðandi í sölu á varahlutum og aukahlutum í bíla.
Stilling rekur fimm öflugar verslanir víðsvegar um landið en einnig er fyrirtækið með sérstakan gagnagrunn sem verslanir og bílaumboð geta pantað úr á heimasíðu Stillingar hf.
Stilling er eitt elsta varahlutafyrirtæki á Íslandi í dag. Stilling er rótgróið fjölskyldufyrirtæki og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu.
Stilling kappkostar að veita viðskiptavinum sínum um land allt vandaða og góða þjónustu.
Fyrirtækið er með verslanir í Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi og á Akureyri.
Þá er hægt að panta vörur úr gagnagrunni okkar af heimasíðunni Partanet.is Gagnagrunnurinn inniheldur vörur frá yfir 400 framleiðendum sem gerir viðskiptavinum kleift að finna réttan varahlut á auðveldan hátt.
Pöntun á vöru er einstaklega auðveld, viðskiptavinurinn slær inn skráningarúmer bifreiðarinnar og finnur þá gagnagrunnurinn þann varahlut sem passar fullkomlega.