Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Það er annað tveggja sérgreina-sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum.
Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri leggur áherslu á samvinnu við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, tekur þátt í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á landsvísu og er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu.
Sjúkrahúsið á Akureyri er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun. Vottunaraðilinn er alþjóðlega fyrirtækið DNV GL sem er eitt af stærstu fyrirtækjum á þessu sviði í heiminum. Jafnframt hlaut SAk vottun á allri sinni starfsemi samkvæmt ISO 9001:2015 staðlinum.
Starfsemi sjúkrahússins er skipt upp í þrjú klínísk svið auk fjármálasviðs og er einn framkvæmdastjóri yfir hverju þeirra.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar gegnir jafnframt stöðu framkvæmdastjóra bráða- og þróunarsviðs og framkvæmdastjóri lækninga gegnir jafnframt stöðu framkvæmdastjóra handlækningasviðs.