Við tökum að okkur alla flutninga allt frá smásendingum upp í stórsendingar, innanbæjar og um allt land. Hægt er að hafa samband í síma 553-5050 eða tölvupóst í póstfangið afgreidsla@sendibilastodin.is
Afgreiðsla Sendibílastöðvarinnar er opin frá 8:00 til 17:00 alla virka daga. Afgreiðslan tekur á móti pöntunum á flutningum og úthlutar til bílstjóra, samkvæmt lýsingu viðskiptavinar, skráir tímasetningu og upplýsingar um fyrirfram pantaða flutninga eða gefur samband við bílstjóra ef um sérstakar aðstæður er að ræða. Litlir bílar Litlir bílar eru afar hentugir fyrir þröngar aðstæður og komast sumir bílar niður í bílakjallara. Þessir bílar eru einnig hentugir til vörudreifingar og í ýmisskonar flutninga fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Millistórir bílar Millistórir kassabílar eru allir með vörulyftu og henta vel til að flytja brettavöru. Þeir geta flutt allt að 6 bretti og eru allir með brettajakk. Þessir bílar henta vel til flutninga á minni búslóðum, léttari vöru o.fl. Margir af þessum bílum hafa hliðarhurðar og hafa burðargetu alt að 2,2 tonn. Stórir bílar Stórir bílar sem eru hannaðir til flutninga á brettum og, stórum og þungum hlutum. Þeir eru hentugir til flutninga á löngum vörum t.d. plötubúntum , timburbúntum o.s.frv. Flutningsgeta er frá 7 brettum til 19 bretta og hæð bílana er allt að 2,70 m og lengd allt að 8,30 m. Vagnar sem bílstjórar hafa til umráða eru alt að 2,50 m á hæð og 8,20m á lengd. Sumir eru með hliðarhurðir og aðrir með alopnun á hliðum . Heildarbrettafjöldi í hverjum flutning getur verið alt að 32 euro bretti.