Rangárþing ytra er víðfeðmt sveitarfélag með 1682 íbúa(1.1.2020 skv.Hagstofu Íslands). Mörk þess afmarkast að mestu af Þjórsá að vestan, vatnaskilum að norðan að Vatnajökli og Tungnaá. Að sunnan fylgja mörkin Mýrdalsjökli að Eystri-Rangá. Rangárþing ytra er mikið landbúnaðarhérað og hestamennska stunduð í miklu mæli.
Í sveitarfélaginu eru margar þekktar náttúruperlur eins og Hekla og Landmannalaugar auk margra annarra áhugaverðra staða. Hella er helsti þéttbýlis- og atvinnukjarni sveitarfélagsins með 886 íbúa(árið 2020).
Á Hellu byggist atvinnulífið að mestu á þjónustu við landbúnaðinn auk þjónustu við íbúa svæðisins og ferðamenn. Á Hellu er banki, pósthús, hótel, gistiheimili, sundlaug, tjaldsvæði, veitingahús, vínbúð, kjötbúð, fiskbúð, apótek, heilsugæslustöð, sláturhús, bifvélaverkstæði, hjólbarðaverkstæði, bensínstöð auk margs konar atvinnureksturs og opinberrar þjónustu.