Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur.
Samtökin opnuðu þjónustu sína vorið 2018 og eru með starfsemina að Baldursgötu 7 í Reykjavík.
Til samtakanna geta leitað einstaklingar og aðstandendur sem vilja fá hjálp og viðtal hjá fagfólki.
Lagt er upp úr því að bjóða upp á rólegt og notalegt umhverfi fyrir skjólstæðinga.
Starfsemin er rekin að fyrirmynd og eftir hugmyndafræði Pieta House á Írlandi.
Meðferð okkar er mótuð af samúð og virðingu fyrir hverjum þeim sem til okkar leitar og áhersla lögð á lausnir og uppbyggingu.
Miðað er að því að leysa yfirstandandi krísu með viðkomandi og glæða von um líf sem er þess virði að lifa.
Kennd eru ýmis bjargráð til að fást við erfiðar tilfinningar ásamt streitu- og tilfinningastjórnun og samskiptafærni.
Gefinn er kostur á allt að 15 viðtölum, en þörfin er metin í hverju tilviki fyrir sig.
Þegar við á er fjölskyldu og/eða nánustu aðstandendum boðið að taka þátt í meðferðinni, með það að markmiði að styrkja stuðningsnet einstaklingsins.
Gefinn er kostur á allt að 5 viðtölum fyrir aðstandendur.
Meðferðin er skjólstæðingum að öllu gjaldfrjáls. Fyrir hverja er meðferðin?
Einstaklinga hafa tíðar hugsanir um að vilja ekki lifa, sjá ekki tilgang með lífinu, leita leiða til að binda endi á líf sitt, hafa misst vonina og líta á sjálfsvíg sem leið út úr vanlíðan.
Einstaklinga sem nota sjálfsskaða sem bjargráð við vanlíðan.
Aðstandendur sem hafa misst eða eiga ástvin í vanda geta sótt sérstaka stuðninghópa og fengið ráðgjöf.
Þegar einstaklingar þurfa önnur meðferðarúrræði en þau sem við höfum yfir að ráða reynum við að aðstoða með hver hægt er að leita.
Dæmi um það eru vímuefnameðferðir, geðdeildir eða félagsþjónustan.
Markmið samtakanna er: