Lota er framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði verkfræði og ráðgjafar.
Stofuna má rekja allt til ársins 1960 og sú reynsla sem skapast hefur í gegnum árin endurspeglast í þeim lausnum og þjónustu sem við veitum stórum hópi viðskiptavina okkar úr einkageiranum sem og hinu opinbera.
Við erum blandaður hópur af góðu fólki sem finnst skemmtilegt að veita einfaldar, áreiðanlegar og skýrar lausnir fyrir viðskiptavini okkar.
Lota hefur vaxið frá því að vera lítil sérhæfð rafmagnsverkfræðistofa yfir í framsækið þjónustufyrirtæki.
Starfsemin tengist enn raforkumálum svo sem flutningi, dreifingu og framleiðslu, auk þess sem Lota þjónustar stóra viðskiptavini í ferðaþjónustu, iðnaði og viðkvæmum rekstri á borð við spítala og gagnaver.
Lota býr yfir mikilli þekkingu og reynslu í flóknum iðnstýringum, loftræsti -og kælikerfum, bruna- og öryggishönnun.
Þá hafa mörg verkefni Lotu verið í áætlanagerð, fýsileikagreiningum, verkefnaþróun og verkefnastýringu.