Íslensk-Bandaríska (ÍSBAND) er umboðs- og dreifingaraðili fyrir vörumerkin Jeep, RAM, Fiat, Alfa Romeo, Chrysler og Dodge á Íslandi.
Hjá ÍSBAND eru nú um 40 stöðugildi. ÍSBAND bílaverkstæði sinnir ofantöldum vörumerkjum sem og 33″-40″ breytingum á Jeep og RAM.
Varahlutaverslunin flytur inn varahluti frá ofangreindum vörumerkum, öðrum USA merkjum og aukahluti. ÍSBAND er umboðsaðili fyrir AEV, Teraflex, Falcon, ARE og Bakflip. Verkstæði og varahlutaverslun eru í rúmgóðu húsnæði að Smiðshöfða 5, 110 Reykjavík þar sem góð aðstaða er til að taka á móti stórum pallbílum og húsbílum.
Söludeild er staðsett í Þverholti í Mosfellsbæ.