Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) samanstendur af átta starfsstöðvum.
HVE veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma. Þjónustan er veitt íbúum umdæmisins og öðrum sem eftir henni leita. Kjarnastarfsemin skiptist á þrjú málefnasvið eftir meginviðfangsefnum þ.e. heilsugæslusvið, hjúkrunarsvið og sjúkrasvið.
Heilbrigðisumdæmi Vesturlands nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.
Hlutverk heilsugæslusviðs er að veita læknisþjónustu, hjúkrun, geðheilbrigðisþjónustu, heilsuvernd, forvarnir, slysa- og bráðaþjónustu og annast sjúkraflutninga.
Hlutverk sjúkrasviðs er að starfrækja umdæmissjúkrahús, almenn sjúkrarými og endurhæfingu.
Hlutverk hjúkrunarsviðs er að starfrækja hjúkrunarrými á starfsvæðinu þar sem slík þjónusta er ekki rekin af öðrum.
Lögð er áhersla á virðingu, traust og fagmennsku. Velferð skjólstæðinga skal höfð að leiðarljósi. Stuðlað er að virkri sí- og endurmenntun starfsfólks.
HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir.