Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir er nafn sameinaðrar stofnunar sem byggir á samnefndum stofnunum.
FSRE hefur umsjón með mótun og rekstri aðstöðu sem nýtist öllum íbúum landsins með einum eða öðrum hætti. Við önnumst fasteignir og jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og stýrum framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Okkar markmið er að þjónusta ríkisins sé veitt við bestu aðstæður.
Haustið 2021 runnu Framkvæmdasýsla ríkisins og Ríkiseignir saman í eina stofnun, Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir, eða FSRE.
Stofnanirnar höfðu þá starfað samhliða í góðu samstarfi um margra ára skeið. Ríkisieignir höfðu haft eignasafn ríkisins í sinni umsjón, en Framkæmdasýslan sinnt byggingu nýrrar aðstöðu, leigu og endurbótum á húsnæði ríkisstofnana og ráðuneyta.
Alls starfa 59 starfsmenn hjá Framkvæmdasýslu – Ríkiseignum. Allt starfsfólk hefur sérþekkingu á einhverju sviði þróunar og rekstrar fasteigna.
Þannig eru sérfræðingar í hjúkrunarheimilum, framhaldsskólum, heilsugæslum, aðstöðu á vinsælum ferðamannastöðum, auk þess sem við höfum á að skipa hópi sem sérhæfir sig í mótun skrifstofuhúsnæðis ríkisaðila.
Þá starfa hjá stofnuninni sérfræðingar í landupplýsingum, í viðhaldi eigna, útleigumálum og auðvitað í umsjón á byggingaframkvæmdum.
FSRE meðal stærstu verkkaupa á verktakamarkaði landsins. FSRE er jafnframt stór viðskiptavinur hjá arkitekta- verkfræði- og hönnunarstofum, öll endanleg hönnun verkefna fer fram utan FSRE.