Fiskistofa sér um útgáfu veiðileyfa, annast framkvæmd laga um stjórnun fiskveiða og sinnir eftirliti með fiskveiðum ásamt úrvinnslu og útgáfu upplýsinga þar um.
Fiskistofa er stjórnsýslu og eftirlitsstofnun sem heyrir undir matvælaráðuneytið. Fiskistofa fer með framkvæmd laga á sviði fiskveiðistjórnunar og lax og silungsveiða. Helstu verkefni Fiskistofu eru veiting veiðileyfa, úthlutun aflaheimilda og eftirlit með fiskveiðum og vigtun á sjávarafla.
Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og þekkingarmiðlun