Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors við Námsbraut í sjúkraþjálfun innan Læknadeildar á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.
Starfið felur fyrst og fremst í sér kennslu og rannsóknir á sviði sjúkraþjálfunar, auk stjórnunarskyldu.
Hafa umsjón með námskeiðum og kenna efni á sviði sjúkraþjálfunar með áherslu á sérsvið viðkomandi.
Leiðbeining í BS og MS verkefnum sem tengjast sjúkraþjálfun.
Byggja upp rannsóknir við námsbrautina með áherslu á sérsvið og leiðbeina nemendum í rannsóknatengdu framhaldsnámi.
Taka þátt í stjórnun námsbrautarinnar.
Doktorspróf á fræðasviðinu
Klínísk reynsla á sviði sjúkraþjálfunar
Sérþekking á einu eða fleirum af eftirtöldum sviðum: Hjartasjúkraþjálfun, lungnasjúkraþjálfun, gigt og langvinnir verkir, barnasjúkraþjálfun og hreyfistjórn/hreyfinám (e. motor control/motor learning).
Rannsóknarvirkni á sérsviði
Reynsla af kennslu/leiðbeiningu á háskólastigi og stjórnun er kostur
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Umsækjendur þurfa að geta kennt og átt í samskiptum við starfsfólk og nemendur námsbrautarinnar á íslensku og/eða ensku
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Námsbrautar í sjúkraþjálfun.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eftir að lokið er störfum þeirra nefnda sem að ráðningunni koma eða eftir nánara samkomulagi.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Námsbraut í sjúkraþjálfun tilheyrir Læknadeild sem er ein af sex deildum Heilbrigðisvísindasviðs við Háskóla Íslands. Námsbrautin býður upp á fimm ára nám til starfsréttinda í sjúkraþjálfun; þriggja ára BS nám í sjúkraþjálfunarfræðum og tveggja ára MS nám í sjúkraþjálfun. Á hverju hausti eru teknir inn 35 nemendur samkvæmt frammistöðu á inntökuprófi. Það er stefna Námsbrautar í sjúkraþjálfun að mennta sjúkraþjálfara sem eru gagnrýnir í hugsun, byggja starf sitt á gagnreyndri þekkingu, skila árangri, fylgja siðareglum og eru virkir í símenntun. Við útskrift eiga nemendur að hafa þróað með sér fagmennsku og samfélagslega ábyrgð. Við námsbrautina starfa núna átta starfsmenn í akademískum stöðum og þrír í stöðu verkefnisstjóra. Allir starfsmenn sinna metnaðarfullum rannsóknum og þróunarverkefnum á ýmsum sviðum innan sjúkraþjálfunar og heilbrigðisvísinda, í samvinnu við erlenda og innlenda aðila. Ætlast verður til að sá sem hlýtur umrætt starf breikki og styrki enn frekar rannsóknarsvið námsbrautarinnar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.03.2025
Sólveig Ása Árnadóttir, saa@hi.is
Sími: 5254074
Fá tilkynningu um svipuð störf
Lektor í kynjafræði, Stjórnmálafræðideild, Félagsvísindasvið Háskóli Íslands Hlusta Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar fullt starf lektors í kynjafræði....
Sækja um þetta starfLektor í þýsku Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Þýska...
Sækja um þetta starfLektor í vistfræði sjávar eða ferskvatns Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði vistfræði sjávar eða ferskvatns...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi á sviði tölfræðilegrar og tæknilegrar jarðskjálftafræði Hlusta Auglýst er laust til umsóknar starf doktorsnema á sviði tölfræðilegrar (statistical seismology)...
Sækja um þetta starfDoktorsnám í jarðhita með áherslu á þátt jarðhitavökva í kælingu kvikuinnskota Hlusta Auglýst er laust til umsóknar starf doktorsnema á...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í tölfræði Hlusta Starf doktorsnema í tölfræði er laust til umsóknar við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Doktorsneminn mun vinna að...
Sækja um þetta starf