Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði vistfræði sjávar eða ferskvatns við Líf- og umhverfisvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Leitað er að einstaklingi með bakgrunn í rannsóknum á sviði vistfræði sjávar eða ferskvatns og áhuga á háskólakennslu.
Lektorinn kemur að kennslu og kennsluþróun í grunnnámskeiði í vistfræði auk framhaldsnámskeiða, t.d. í sjávarvistfræði eða ferskvatnslíffræði. Viðkomandi mun einnig sinna leiðbeiningu rannsóknarverkefna í grunn- og framhaldsnámi, byggja upp sjálfstæðar rannsóknir á sviði vistfræði sjávar eða ferskvatns við deildina og afla utanaðkomandi rannsóknarstyrkja. Í starfinu felst jafnframt þátttaka í stjórnun deildarinnar og önnur akademísk þjónustu- og stjórnunarstörf.
Doktorspróf í vistfræði eða líffræði, með áherslu á lífverur eða vistkerfi sjávar eða ferskvatns.
Reynsla af háskólakennslu.
Reynsla af umsjón námskeiða og kennsluþróun á háskólastigi er kostur.
Rannsóknareynsla á sviði vistfræði sjávar eða ferskvatns, sem m.a. birtist í ritrýndum rannsóknargreinum í viðurkenndum tímaritum á fagsviðinu.
Reynsla af stjórnun rannsóknarverkefna og öflun rannsóknarstyrkja.
Góð færni í ensku í ræðu og riti.
Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði.
Góð íslenskukunnátta er kostur.
Við ráðningu verður horft til þess að sá sem hlýtur starfið falli sem best að aðstæðum og þörfum Líf- og umhverfisvísindadeildar.
Fyrirlestrar í grunnnámi fara almennt fram á íslensku og er ætlast til þess að viðkomandi geti kennt á íslensku innan fimm ára frá upphafi starfs. Háskóli Íslands aðstoðar erlent starfsfólk við að læra og ná tökum á íslensku máli eftir þörfum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi, enda verði störfum nefnda sem um málið fjalla þá lokið.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil.
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae).
Ritaskrá.
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið.
Greinargerð um rannsókna- og kennsluáform ef til ráðningar kemur.
Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Ráðið verður í starfið til fimm ára fyrst í stað, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi háskólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsfólks í uppbyggingu náms og rannsókna. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Við Líf- og umhverfisvísindadeild fer meðal annars fram grunnkennsla á sviði líffræði og sameindalíffræði auk menntunar MS- og doktorsnema á fagsviðunum. Lögð er áhersla á grunnrannsóknir og miðlun vísindaþekkingar til samfélagsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2025
Arnar Pálsson, apalsson@hi.is
Sími: 5254265
Gunnar Þór Jóhannesson, gtj@hi.is
Sími: 5254055
Fá tilkynningu um svipuð störf
Lektor við Námsbraut í sjúkraþjálfun – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors við Námsbraut...
Sækja um þetta starfDoktorsnám í jarðhita með áherslu á þátt jarðhitavökva í kælingu kvikuinnskota Hlusta Auglýst er laust til umsóknar starf doktorsnema á...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi á sviði tölfræðilegrar og tæknilegrar jarðskjálftafræði Hlusta Auglýst er laust til umsóknar starf doktorsnema á sviði tölfræðilegrar (statistical seismology)...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í landfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í við Líf- og umhverfisvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starfLektor í kynjafræði, Stjórnmálafræðideild, Félagsvísindasvið Háskóli Íslands Hlusta Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar fullt starf lektors í kynjafræði....
Sækja um þetta starfLektor í þýsku Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Þýska...
Sækja um þetta starf