Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf forstöðumanns Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.
Menntavísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun innan Háskóla Íslands. Stofnunin leiðir uppbyggingu rannsóknarinnviða í menntavísindum og er samstarfsvettvangur rannsókna á Menntavísindasviði. Menntavísindastofnun veitir stuðning við rannsakendur og doktorsnema, eflir alþjóðlegt samstarf og sinnir fræðilegri útgáfu. Stofnunin sinnir jafnframt verkefnum innan háskólans sem utan t.d. með því að framkvæma rannsóknir og úttektir fyrir stjórnvöld og aðra hagaðila.
Forstöðumaður stýrir stofnuninni og ber ábyrgð á daglegum rekstri hennar, aflar henni verkefna og tekna, annast áætlanagerð, fjármál og starfsmannamál og sér um framkvæmd á þeim málum sem stjórn Menntavísindasviðs felur honum. Forstöðumaður ber ábyrgð á þeim rannsóknarverkefnum sem stofnunin hýsir og er ábyrgur fyrir fagmennsku, framgangi þeirra og skilum.
Í boði er mjög áhugavert og krefjandi starf fyrir öfluga manneskju sem vill taka þátt í að leiða stofnunina á komandi árum.
Daglegur rekstur stofnunar, s.s. stjórnun og starfsmannahald, fjármál og áætlanagerð, samskipti við stjórn og forseta Menntavísindasviðs.
Öflun verkefna og styrkja.
Stefnumótun, langtímaáætlanagerð, gæðamál og þróunarvinna.
Upplýsingagjöf og kynningarmál um málefni stofnunarinnar.
Umsjón með rannsóknarverkefnum eftir því sem við á.
Umsjón með og efling samstarfs stofnunar við aðila innan og utan HÍ.
Meistaragráða á sviði menntavísinda eða skyldra fræðigreina sem nýtist í starfi.
Doktorspróf á sviði menntavísinda eða skyldra fræðigreina er kostur.
Reynsla af stjórnun og mannaforráðum.
Þekking á rannsóknaraðferðum mennta- og félagsvísinda.
Reynsla af alþjóðlegu og þverfaglegu rannsóknarstarfi er kostur.
Reynsla af gerð starfs- og fjármálaáætlana er kostur.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Leiðtogahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Staðfest afrit af prófskírteinum
Greinagerð þar sem áhuga fyrir starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til þess
Upplýsingar um umsagnaraðila
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Á Menntavísindasviði fer fram rannsóknartengt starfsnám fyrir kennara á leik-, grunn- og framhalds- og háskólastigi, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga, og þroskaþjálfa. Lögð er áhersla á rannsóknir og þróunarstarf sem unnið er í samstarfi við starfsvettvang.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2025
Svavar Jósefsson, svavarjo@hi.is
Lára Rún Sigurvinsdóttir, lararun@hi.is
Sími: 5255905