Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Deild Faggreinakennslu við Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um doktorsnemastöðu, sem nýtur styrks til 3 ára. Doktorsneminn mun vinna að rannsóknarverkefninu “Endurgjöf og leiðsögn í samfélagslegri nýsköpunarmenntun”, innan SEISMIC Doctoral Network (SEIZMIC-DN), sem fjármagnað er af Marie Sklodowska-Curie Actions (MSCA) og í samstarfi við Aurora European University Network (Aurora). Auk eigin doktorsverkefnis mun doktorsneminn leggja sitt af mörkum til annarra þátta SEIZMIC-DN.
Doktorsverkefnið verður eitt af 15 verkefnum innan doktorsnetsins sem stuðla að því heildarmarkmiði að skilja betur skölun samfélagslegrar nýsköpunar. Doktorsverkefnið er hluti af þeim vinnupakka SEIZMIC-DN sem snýr að menntun og hæfni (e. Education and competencies). Doktorsneminn mun:
Vinna fræðilegt yfirlit (e. literature review) um endugjöf og leiðsögn í námi og á starfsvettvangi þar sem sjónum er sérstaklega beint að nýsköpun og þróun hæfni á sviði samfélagslegrar nýsköpunar.
Skoða hlutverk endurgjafar á vegferðinni sem snýst um að ná hæfni í samfélagslegri nýsköpun í háskólum og ýmsum starfsvettvangi. Bæði verða nýttar megindlegar kannanir og eigindleg einstaklings- og hópviðtöl við nemendur og akademíska kennara.
Þróa líkan um endurgjöf og leiðsögn til að efla hæfni í samfélagslegri nýsköpun, hæfni sem nýtist bæði í akademísku samhengi og á starfsvettvangi.
Umsækjandinn mun vinna með öðrum doktorsnemum og leggja sitt af mörkum til viðeigandi afraksturs innan SEIZMIC-DN.
Fyrir frekari upplýsingar um þátttakendur í þessu verkefni, vinsamlegast skoðið eftirfarandi vefsíður:
SEIZMIC-DN: https://www.seizmic.eu/msca
Háskóli Íslands: https://english.hi.is/university/the%5Funiversity
Menntavísindasvið: https://www.hi.is/menntavisindasvid
Deild Faggreinakennslu: https://www.hi.is/deild%5Ffaggreinakennslu
Einnig geta væntanlegir umsækjendur skráð sig á upplýsingafund á netinu fyrir allar opnar SEIZMIC-DN doktorsstöður:
Þátttaka í rannsóknarvinnu í samstarfi við aðalleiðbeinanda
Eigindleg gagnasöfnun og greining, fyrst og fremst með eigindlegum viðtölum en einnig með aðferðum.
Miðlun rannsóknarniðurstaðna í formi doktorsritgerðar (3-5 greinar í viðurkenndum vísindatímaritum), með kynningum á alþjóðlegum ráðstefnum og til almennings
Skipulagning vinnustofa í samvinnu við rannsóknarteymið
Meistaragráða í menntunarfræðum eða skyldum greinum með að lágmarki fyrstu einkunn
Sterk greiningarhæfni og rannsóknarfærni
Framúrskarandi færni í ensku
Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og skipulagshæfni
Góð færni í mannlegum samskiptum
Samkvæmt kröfum MSCA verkefna (e. mobility requirements) mega umsækjendur ekki hafa búið eða sinnt aðalstarfi sínu (starfi, námi o.s.frv.) á Íslandi lengur en 12 mánuði á síðustu 3 árum fyrir ráðningardag
Samkvæmt kröfum MSCA mun doktorsneminn vinna hluta tímabilisins (e. academic secondment) við annan SEIZMIC-DN samstarfsháskóla
Auk þess mun doktorsneminn vinna hluta tímabilsins í samstarfi við BABELE til að læra um og beita endurgjöf og leiðsögn með hjálp sýndarveruleika.
Umsækjandi skal sinna starfinu við Háskóla Íslands, hjá samstarfsaðilum skv. MSCA kröfum, og verður einnig að geta sótt ráðstefnur og aðra viðburði eftir því sem við á
Aðgangur að doktorsnámi er skilyrði fyrir starfinu. Bjóðist umsækjanda starfið þarf umsækjandi að sækja formlega um doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (sjá leiðbeiningar með umsókn).
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknir skulu innihalda:
Kynningarbréf (u.þ.b. 2 blaðsíður) á ensku þar sem greint er frá áhuga umsækjanda á verkefninu og því sem hann leggur til þróunar þess og framkvæmdar
Tillaga að rannsóknaráætlun (um 2000-4000 orð, fyrir utan tilvísanir)
Ferilskrá (1-2 blaðsíður) á ensku, þar sem gerð er grein fyrir viðeigandi starfsreynslu, færni tengdri verkefninu og útgefið efni ef við á
Námskeiðsafrit og prófskírteini frá bakkalár- og meistaranámi
Afrit af meistararitgerð eða rannsóknargreinum, ef við á
Tvö meðmælabréf ásamt upplýsingum um meðmælendur (t.d. netfang og sími)
Allir umsækjendur verða upplýstir um niðurstöðurnar þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknin gildir í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Tilnefningar fara fram með hliðsjón af jafnréttisstefnu Háskóla Íslands: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands
Allar umsóknir þurfa að innihalda tillögu að rannsóknaráætlun (2000-4000 orð fyrir utan tilvísanir) þar sem umsækjendur gera grein fyrir því hvernig þeir myndu stefna að því að framkvæma rannsóknir tengdar starfinu. Með rannsóknaráætluninni sýna umsækjendur getu sína til að skilgreina rannsóknarverkefni sjálfstætt og ramma það inn í viðeigandi fræði (bæði í tengslum við kenningar og rannsóknaraðferð). Rannsóknaráætlun skal byggja á ofangreindri lýsingu á rannsóknarverkefninu. Lýsa skal hvernig rannsaka mætti endurgjöf og leiðsögn sem eflir hæfni til samfélagslegrar nýsköpunar, hæfni sem nýtist bæði í akademísku samhengi og á fjölbreyttum starfsvettvangi. Tilgreina þarf hvernig umsækjandi gæti nýtt fyrirhugað samstarf (e. secondment) í rannsóknarvinnunni. Í aðferðakafla skal taka mið af blönduðum rannsóknaraðferðum (e. mixed methods). Tillaga að rannsóknaráætlun skal taka til eftirfarandi þátta:
Stutt útskýring á markmiðum verkefnisins
Útskýring á viðfangsefninu, tilgátum eða málefnum sem doktorsneminn hefur hug á að vinna með
Staðsetning verkefnisins á rannsóknarsviði menntavísinda
Lýsing á nýjustu þekking á rannsóknarsviði verkefnisins
Útskýring á þeim kenningum sem verkefnið byggst á
Útskýring á rannsóknaraðferðunum sem á að beita
Vísbending um hugsanlegt framlag verkefnisins til vísindaþróunar
Vinnuáætlun (stutt), sem lýsir meginhlutum og helstu áföngum verkefnisins, þar á meðal tímasetningu á þáttum doktorsnámsins
Áætlað er að umsækjandi hefjist handa í febrúar 2025.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.09.2024
Auður Pálsdóttir, audurp@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Nýdoktor í tilraunastjarneðlisfræði Hlusta Starf nýdoktors við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands er laust til umsóknar. Nýdoktorinn mun verða hluti af CMBeam...
Sækja um þetta starfLaugalækjarskóli er annar af hverfisskólum Laugarneshverfis, stofnaður árið 1960. Í skólanum eru um 415 nemendur í 7. – 10. bekk...
Sækja um þetta starfMiðborg er 5 deili leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Í haustmmun þriðja húsið...
Sækja um þetta starfUmsjónarmaður rannsóknarstofa í jarðefnafræði Hlusta Til umsóknar er starf umsjónarmanns/tæknimanns á rannsóknarstofu í jarðefnafræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Um er...
Sækja um þetta starfKlettaborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á börn læri í gegnum leik. Markvisst er unnið með...
Sækja um þetta starfMiðborg er 5 deili leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Í haust mun þriðja...
Sækja um þetta starf