job.is

Fréttir

Atvinnuleysisbætur hækka frá 1. janúar 2009
5.1.2009 Atvinnuleysisbætur hækka frá 1. janúar 2009 1. janúar 2009 hækka mánaðargrunnatvinnuleysisbætur um kr. 13.500 miðað við bætur eins og þær voru á árinu 2008. Grunnatvinnuleysisbætur þeirra sem eru með 100% bótarétt verða eftir hækkun kr. 149.523.- á mánuði og verða greiðslur á atvinnuleysisdag hjá þeim sem eru með 100% bætur eftir hækkun kr 6.900.-
Alþjóðavinnumálastofnunin og heimskreppan
6.1.2009 Alþjóðavinnumálastofnunin og heimskreppan Juan Somavia aðalritari Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) ein af undirstofnunum Sameinuðu þjóðanna (sjá heimasíðu ILO www.ilo.org ) segir í yfirlýsingu* að heimsbyggðin sé lent í kreppu mitt í þeirri kreppu sem hún var í fyrir. Hin viðvarandi kreppa sem hann vitnar til er sú tilhneiging í ríkjandi efnahagskerfi til félagslegrar mismununar.
Nýjar reglugerðir um virkar vinnumarkaðsaðgerðir
9.1.2009 Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur sett reglugerð um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði sem atvinnuleitendur geta tekið þátt í samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur, svo sem þátttöku í sérstökum átaksverkefnum, frumkvöðlastörfum og sjálfboðaliðastörfum. Enn fremur fjallar reglugerðin um búferlastyrki, atvinnutengda endurhæfingu og fleira. Ráðherra hefur einnig sett reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði. Reglugerðirnar eru settar með stoð í lögum um atvinnuleysistryggingar.
Starfshópur um leiðir til að sporna gegn atvinnuleysi
12.1.2009 Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað starfshóp um vinnumarkaðsaðgerðir með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna, fjármálaráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins til að móta tillögur um aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi. Hópnum er ætlað að skila félags- og tryggingamálaráðherra fyrstu tillögum sínum um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir 1. febrúar.



Nettengsl ehf. simi (+354) 552 3335 job@job.is